Engin héraðssýning kynbótahrossa í Víðidal

  • 10. apríl 2012
  • Fréttir

Fáksfélagar á LM2011 á Vindheimamelum.

Ekki vilji hjá viðkomandi samböndum

Óskir hafa komið fram um að kynbótasýning verði haldin í Víðidal í Reykjavík á komandi vori. Í viðræðum hrossaræktarráðunauts og formanns fagráðs við fulltrúa Búnaðarsambands Suðurlands og Hrossaræktarsambands Suðurlands kom fram að þeir telja ekki ástæðu til að breyta útgefinni sýningaáætlun fyrir árið 2012. Fagráð ákvað að fara að þeirra tillögum, skv. venju um tillögur sýningahaldara og breyta ekki áður útgefinni dagskrá og verði því ekki stefnt á kynbótasýningu í Víðidal á þessu vori.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link