Reiðnámskeið hjá Unn Krogen

  • 24. febrúar 2011
  • Fréttir
Reiðnámskeið hjá Unn Krogen

Eiðfaxa barst þessi spennandi tilkynning:

„Vegna fjölda áskoranna mun Unn Krogen halda annað námskeið á Íslandi dagana 17.-20. mars, eða á fimmtudegi, föstudegi og sunnudegi (frí á laugardegi). Námskeiðið verður í formi einkatíma og haldið að Borg í Þykkvabæ.

Mikil ánægja var með síðasta námskeið sem Unn hélt í Rangárhöllinni í janúar en hún hefur gríðarlega reynslu, bæði sem þjálfari og reiðkennari. Námskeiðið kostar 30.000 kr. Fyrstir koma, fyrstir fá.

Skráning á netfangið [email protected] eða hjá Daníeli  860-3559.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link