Erfiðar aðstæður á kynbótabrautinni
Þær voru glæsilegar, sýningar nokkurra 6 vetra hryssna í kvöldsólinni í gær fyrir framan fjölda gesta.
Í dag horfir allt öðruvísi við, kynbótavöllurinn er rennblautur og aðeins fáeinir harðkjarna áhorfendur í brekkunni. Í dag fara fram dómar á 6 vetra hryssum, en svo taka 5 vetra hryssur við kl. 19. Í morgun hefur aðeins ein hryssa haldið sínum upphaflegri einkunn en í gær heyrði það til undantekninga ef hross lækkuðu í einkunn.
Hæstu einkunn morgunsins hefur hlotið Erla frá Halakoti, 8.31 í aðaleinkunn. Erla var hæst dæmda 5 vetra hryssa síðasta ár, og hæst dæmda 4 vetra hryssa árið 2012.
IS2008282451 Erla frá Halakoti
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 8,0 – 7,5 = 8,23
Hæfileikar: 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 = 8,37
Aðaleinkunn: 8,31 Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 7,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári