Smyrillinn stefnir á Berlín
Hinrik Bragason stefnir með töltarann Smyril frá Hrísum í úrtöku fyrir Heimsmeistamótið í Berlin næsta sumar. Smyrill, sem er undan Skorra frá Gunnarsholti og Mirru frá Hrísum, er tiltölulega ungur í keppni þótt hann sé ellefu vetra. Sigurbjörn Viktorsson keppti á honum tímabilið 2010 og Þorvaldur Árni Þorvaldsson 2011, en þá um sumarið keypti Hinrik hestinn. Þeir félagar urðu í öðru sæti í tölti, bæði á Landsmótinu og Íslandsmótinu í sumar, en þeir voru efstir eftir forkeppni í bæði skiptin. „Hann vantaði örlítið meira úthald og styrk til að landa sigri á þessum mótum, en ég hef fulla trú á því að næsta sumar mætum við sterkari til leiks og þá ætlum við okkur stóra hluti,“ segir Hinrik.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH