Sörli ekki sáttur við nýtt deiliskipulag í Heiðmörk
Ályktun frá félagsfundi í Sörla 10.september 2012 vegna nýs deiluskipulags um Heiðmerkursvæðið
Hestamannafélagið Sörli gerir athugasemdir við nýtt deiliskipulag Reykjavíkurborgar sem er í kynningu fyrir Heiðmerkursvæðið. Sótt er að vinum okkar í Fáki hvað varðar reiðleiðir sem hafa verið þar í áratugi, sem og öðrum sem þessar leiðir nota. Í nýju skipulagi eru hestamenn settir til hliðar og aðrir útivistarhópar settir í forgang. Teljum við að þar sé að hestamönnum vegið. Við skorum á Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar að halda Heiðmörkinni áfram sem útivistarparadís allra útivistarhópa og taki tillit til athugasemda og leiða til úrbóta sem samtök hestamanna í samráði við Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt hafa gert og sent til Skipulags- og byggingarsviðs borgarinnar.
F.h. Hestamannafélagsins Sörla
Magnús Sigurjónsson, formaður
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH