Blæja jafnar einkunn Markúsar
Blæja frá Lýtingsstöðum hlaut 9,27 í einkunn í úrslitum í B flokki á gæðingamóti Geysis og jafnaði þar með einkunn Markúsar frá Langholtsparti frá því á LM2000. Eftir því sem næst verður komist er þetta hæsta einkunn sem gefin hefur verið í B flokki, en ábendingar um annað eru vel þegnar ([email protected])
Knapi á Blæju var eigandi hennar Sigurður Sigurðarson á Þjóðólfshaga I, en Blæja er ein af nokkrum hryssum á Þjóðólfshaga sem eru með 9,5 fyrir tölt í kynbótadómi. Hún er undan Djáknari frá Hvammi, Jarlssyni frá Búðardal, og Björgu frá Kirkjubæ, Trostansdóttur frá Kjartansstöðum.
Sigurður keppti á Blæju í tölti á LM2012 en komst ekki í A úrslit, hlaut 7,89 í B úrslitum. Í úrtöku í B flokki fyrir LM2012 hlaut hún 8,53. Það er því greinilegt að hún hefur verið í miklu stuði á Geysismótinu, enda misjafnt eftir hrossum hvort þau toppa sig snemma eða síðsumars.
Nokkur hross hafa farið yfir 9,0 í aðaleinkunn í B flokki. Þar má nefna Gamm frá Hofsstöðum á LM1974, 9,12, Hlyn frá Akureyri á LM1978, 9,16, Markús frá Langholtsparti LM2000, 9,27, Kjarkur frá Egilsstaðabæ LM2002, 9,03, Rökkvi frá Hárlaugsstöðum Fáksmót 2006 9,26. Styrkur Landsmótanna er þó meiri og einkunnir á einstökum mótum geta rokkað til.
Þess má geta að Blæja eignaðist tvö folöld í fyrra, rauðstjörnóttan hest undan Kjarna frá Þjóðólfshaga I og rauða hryssu undan Loka frá Selfossi. Hún gekk þó ekki með þau bæði, en fékk aðstoð frá annarri hryssu sem gekk með og fóstraði merfolaldið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH