Norðurlandamótið heim í stofu
Forkeppni í hringvallargreinum á Norðurlandamótinu í Eskilstuna stendur ennþá yfir. B úrslit verða á morgun laugardag, og A úrslit á sunnudag. Fylgjast má með úrslitum einstakra greina HÉR. Bein útsending verður frá úrslitum mótsins á vef Norðurlandamótsins. Byrjað verður að senda út klukkan 08.50 í fyrramálið, laugardag og á sama tíma á sunnudaginn. Nálgast má lynkinn á beinu útsendinguna HÉR.
Árangur Íslenska liðsins til þessa er ekki eins og vonast var eftir. Helsta tromp Íslendinga í tölti, Þórður Þorgeirsson á Tý frá Auðsholtshjáleigu er í sjöunda sæti eftir forkeppni með 7,37 og ljóst að það verður þungur róður að komast á toppinn, jafnvel þótt honum takist að vinna B úrslitin. Nils Christian Larsen Noregi er langefstur í töltinu á Mola frá Skriðu með 8,13.
Árangur Íslendinga er betri í slaktaumatöltinu. Þar eru tveir íslenskir keppendur efstir í fyrsta og öðru sæti eftir forkeppni, Agnar Snorri Stefánsson á Feng frá Staagerup með 7,90 og Viðar Ingólfsson á Skvísu frá Hrafnshotli með 7,87. Reynir Örn Pálmason er efstur í inn í B úrslit á Tór frá Auðsholtshjáleigu með 7,40.
Flosi Ólafsson, sem keppir í ungmennaflokki, stendur sig vel. Hann er efstur í fjórgangi ungmenna eftir forkeppni á Kveik frá Lian með 7,30, og fimmti í tölti með 6,87. Þannig að hann er kominn í A úrslit í tveimur greinum.
Úrslit í gæðingaskeiði liggja fyrir. Jessica Rydin Svíþjóð á Jórik frá Lönnenberga hirti gullið í flokki fullorðinna með 8,34 í einkunn. Enginn Íslendingur komst þar á verðlaunapall. Í ungmennaflokki var það danska stúlkan Cecilie Catharina Langvad á Gjólu frá Tungukoti sem varð hlutskörpust með 7,29. Helena Kroghen Aðalsteinsdóttir, sem keppir fyrir Ísland, varð þriðja á Fiðlu frá Þingeyrum með 6,04.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH