Einarsstaðamótið framundan

  • 2. ágúst 2012
  • Fréttir
Stórmót Þjálfa verður haldið á Einarsstöðum helgina 11.-12. ágúst

Stórmót Þjálfa verður haldið á Einarsstöðum helgina 11.-12. ágúst. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, tölti og skeiði. Einnig í barna- unglinga- ungmenna- og öldungaflokki.

Grill og kvöldvaka verður á sínum stað á laugardagskvöldinu.  Miðaverð fyrir báða dagana er aðeins kr. 3000.- fyrir fullorðna en frítt fyrir krakka undir 14 ára og (h)eldri borgara 67 ára og eldri.  Þeir sem kjósa að koma einungis á sunnudeginum greiða kr. 1500.- Hægt verður að fylgjast með dagskrá og ráslistum á heimasíðu félagsins: www.thjalfi.123.is en dagskráin mun liggja fyrir fljótlega.

Skráningar skal senda á netfangið: [email protected]   fyrir kl. 22:00 miðvikud. 8. ágúst.  Skráningar verða staðfestar.  Við skráningu þarf eftirfarandi upplýsingar:  Keppnisgrein, nafn knapa og hests, lit, aldur, föður og móður hests og eigandi.  Nánari uppl. í síma 897 3030. Skráningargjald í tölt er kr. 2500.- og í skeið kr. 1000.- og skulu gjöldin greiðast inná reikning 1110-26-000138 kt. 480792-2549 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á [email protected] 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link