Öll mél lögleg sem ekki eru bönnuð

  • 1. ágúst 2012
  • Fréttir
Regla um lágmarksþykkt beislisméla var felld úr gildi fyrir nokkrum árum. Dómarar geta þó bannað mél sem þeir telja að henti ekki íslenskum hestum og reiðhefð.

Sérfræðingur Hestablaðsins í FIPO og almennum reglum í keppni og sýningum á íslenskum hestum rann til á svellinu hvað reglur um beislismél varðar.

Hér á vefnum er frétt undir fyrirsögninni „Ólöglegur einjárnungur hlýtur blessun“. Fullyrðing þessi er röng, og þar með fullyrðing um að margar kynbótasýningar á þessu ári og síðasta séu ólöglegar, vegna þess að reglur um lágmarksþykkt méla (10 millimetrar) var felld úr FIPO fyrir nokkrum árum og í kjölfarið úr reglum um sýningar kynbótahrossa. Þar af leiðir að mælingar á mélum eru ekki lengur við lýði.

Ekki virðast þó allir dómarar hafa meðtekið þessa breytingu og telja að 10 millimetra reglan sé ennþá í gildi. Svo er þó ekki. Það er því ekkert sem bannar knapa að nota tveggja, fjögra, eða sex millimetra tein í mélum, telji hann það „henta sínu hrossi betur“. Dómarar hafa þó vald, samkvæmt FIPO að banna knapa að nota mél sem þeir telja augljóst að meiði hestinn eða henti ekki íslenskum hesti og reiðhefð.

Ástæðan fyrir því að umrædd regla var felld úr gildi ku vera sú að einhverjir fulltrúar á FEIF þingi báðu um staðfestar rannsóknarniðurstöður á því hvort grönn mél meiddu hross meira en þykk. Engin gögn voru til um slíkt og eftir umræður var samþykkt tillaga um að fella regluna úr gildi.

Almennt er þó ekki deilt um að grannur teinn gefur meira átak en gildur teinn. Og því meira eftir því sem teinninn er grennri.

Í reglum um sýningar á kynbótahrossum er eftirfarandi kafli um reiðtygi:

„Reiðtygi og annar búnaður:
    Hnakkar: Heimilt er að nota alla hnakka og hnakkígildi sem ekki valda hrossinu óþægindum eða særindum og hæfa íslenskum hrossum.
    Beislabúnaður: Hann skal fara vel, vera rétt stilltur og ekki valda hestinum eymslum eða særindum.
    Dómnefnd getur veitt undanþágu á reglum þessum til notkunar á mélalausum beislabúnaði ef ástæða þykir til.

    Reiðmúlar: Með hringamélum er heimilt að nota enskan múl (með eða án skáreimar), þýskan múl, mexíkóskan múl og spangamúl. Með íslenskum stöngum, hálfstöngum og tvítaumsstöngum er heimilt að nota enskan múl (með eða án skáreimar) eða mexíkóskan múl.
    Keyri: Leyfilegt er að nota písk, hámarkslengd 120 cm.
    Fótahlífar: Þær séu að hámarki 120 gr. (samanlagður þungi á hvern fót þ.e. legghlífar og hófhlífar) og í dökkum lit, svartar eða dökkbrúnar. Ef hlífar eru notaðar í hæfileikadómi þá skal sami búnaður notaður út alla sýninguna. Ef hlíf dettur af þá skal henni komið fyrir aftur áður en lengra er haldið.“

Í FIPO má meðal annars finna eftirfarandi klausu. Í næst neðstu línu er kveðið á um að þykkt méla og lengd kjálka á stöngum þurfi að standast reglur. Sem eru hins vegar ekki lengur til eftir. Mél og beisli á bannlista má finna HÉR.

Any bit may be used as part of a bridle provided it:
– is suitable for riding horses (not for driving horses or any other use of horses);
– is suitable for riding Icelandic horses;
– fits the horse it is used on correctly;
– complies with  the measurement requirements (thickness of mouthpiece and length of cheeks);
– is not included in the list of prohibited bits.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link