Skrautfjöður á varamannabekk
Vörður frá Strandarhjáleigu, sem kom með hæstu einkunn alhliða gæðinga inn á LM2012 mátti ekki fylgja föður sínum Þóroddi frá Þóroddsstöðum í afkvæmasýningu á mótinu. Samkvæmt reglum þá mega hross sem ekki er með kynbótadóm ekki taka þátt í afkvæmasýningum. Vörður er því á varamannabekk í þessu tilliti þar til hann hefur hlotið kynbótadóm.
Hross með kynbótadóm, sem ekki eru þátttakendur á viðkomandi móti, mega taka þátt, en þá á kynbótajárningu. Sem sagt: Járna verður upp þótt þau hafi verið þjálfuð í sporti og á plastbotnum eða 10mm skeifum. Ekki þarf að járna upp gæðinga sem keppa í sporti á viðkomandi móti og eru með kynbótadóm.
Tveir stóðhestar sem fylgdu Þóroddi, Hringur frá Skarði og Þrumufleygur frá Álfhólum, voru járnaðir upp og voru ekki svipur hjá sjón í sýningunni. Án efa hefði hópurinn verið glæsilegri ef þeir hefðu fengið að halda sinni járningu og Vörður bæst í hópinn. Menn spyrja: Hverjum þjóna reglurnar?
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH