ÍSTÖLT þeirra allra sterkustu
ÍSTÖLT þeirra allra sterkustu verður haldið á laugardagskvöldið kemur í Skautahöllinni í Laugardal og hefst kl. 20:00. Miðasalan hefst í verslunum Líflands, Ástundar, Top Reiter og Baldvins og Þorvaldar á morgun. Miðaverð er kr. 3.500.
Að venju eru á ráslistanum þekktir knapar og hross og verður hann birtur í vikunni. Vitað er að Magnús Bragi Magnússon á Íbíshóli mætir á svæðið, en hann var maður mótsins á Mývatn Open fyrr í vetur. Vann töltið á Óskasteini frá Íbíshóli og stóðhestakeppnina á Vafa frá Ysta-Mói.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH