Mídas í flottu formi
Stóðhesturinn Mídas frá Kaldbak gerði það gott á norsku stórmóti, Østlandsmesterskapet, um helgina. Mídas er nú í þjálfun hjá Nils-Christian Larsen og var þetta þeirra fyrsta mót saman.
Þeir sigruðu fjórgangskeppni mótsins og fengu í lokaeinkunn 7,43, þar af langhæstu einkunn keppenda fyrir yfirferðartölt. Nils-Christan og Mídas mættu einnig í úrslit í tölti og urðu í 2. sæti með einkunnina 7,56 en bikarinn fór hins vegar til Bernt Severinsen og Tíguls frá Kleiva, sem hlutu 8,39 í lokaeinkunn. Öll úrslit Østlandsmesterskapet má nálgast hér.
Það bar til tíðinda árið 2013 þegar Jóhann Skúlason var með Mídas í þjálfun en í viðtali við eigendur Mídasar var stefnan þá að mæta með klárinn á Heimsmeistaramótið í Herning árið 2015. Því er ekki úr vegi að ætla að Nils-Christian sé nú með þá sömu stefnu en nýverið fór aðalkeppnishestur hans síðustu ár, Moli frá Skriðu, til nýrra eigenda í Belgíu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH