Opið hestaíþróttamót Snæfellings
Opna íþróttamót Snæfellings verður haldið í Grundarfirði laugardaginn 12. maí. Mótið hefst kl. 10.
Dagskrá: (háð nægri þátttöku í öllum flokkum) Þulur stjórnar keppni og eru 2 inná í einu.
Forkeppni
Fjórgangur: 1, flokkur, 2, flokkur, barna-, unglinga- og
ungmennaflokkur
Fimmgangur: 1, flokkur, 2, flokkur
Tölt: Barna-, unglinga-, ungmennaflokkur og 2, flokkur, 1, flokkur,
Pollaflokkur, þar má teyma undir eða ríða sjálfur, allir fá þátttökupening.
Úrslit
Fjórgangur: 1, flokkur, 2, flokkur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur
Fimmgangur: 1, flokkur, 2, flokkur
Tölt: Barna-, unglinga-, ungmennaflokkur, og 2, flokkur, 1, flokkur,
100 m skeið: 1, flokkur
Gæðingaskeið 1, flokkur
Skráning hjá Ásdísi í netfangið [email protected] eða í síma: 845 8828.
Við skráningu þarf að koma fram keppnisflokkur, kennitala knapa, skráningarnúmer hests og upp á hvora hönd knapi vill hefja keppni.
2. flokkur er minna keppnisvanir.
Tekið er við skráningum til miðvikudagsins 9. maí kl. 22
Skráningargjald er 2500 kr. en 2000 kr. fyrir skuldlausa félaga fyrir hverja skráningu í öllum flokkum nema í barna- og unglingaflokki, en þar er
skráningargjaldið kr. 500 fyrir hverja skráningu.
Skráningargjöld leggist inná reikning 0191-26-876 kt. 440992-2189 fyrir klukkan 22 miðvikdaginn 9. maí annars verður viðkomandi ekki settur á
ráslista.
Sendið kvittun á netfangið [email protected] og setja í skýringu, íþróttamót 2012
Stjórnin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH