Líflegt í Kálfholti-

  • 26. nóvember 2010
  • Fréttir
Líflegt í Kálfholti-

Vetrarstarfið á hinu kunna ræktunarbúi Kálfholti í Ásahreppi er komið nokkuð af stað…

Allvænn hópur hrossa er nýlaga kominn á hús en als er pláss fyrir um 60 hross í hesthúsum þeirra feðga Ísleifs og Jónasar Jónssonar. Meðal athygliverðra stóðhesta er Kapall 4v. en hann er undan Hágangi frá Narfastöðum og gæðingshryssunni Syrpu Asadóttur. Föngulegur foli sem var nýkominn á hús þegar Eiðfaxasendboði var þar á ferð nýlega.
Tígulssonurinn Vökull 5v. er einn þeirra sem átti að fara í dóm sl. sumar. Móðir hans er hin kunna kynbótahryssa Dimma frá Kálfholti, hann er einnig álitlegur.
 Það má einnig nefna Aronsson, stóran og prúðan, myndarlegan hest á fjórða. Nokkrir fleirri folar eru á búinu sem halda öllu sínu en 7 til 10 ,folöld fæðast á ári. Ísleifur kennir hópum fólks sem er í  Reiðmamminum á Flúðum og Hellu.
      Hann hefur góðan stuðning við tamningar og þjálfun, er t.d. alltaf með verknema frá Hólaskóla eftir áramót. Brynja systir hans og dóttir hennar Ingunn Birna starfa mikið í hestamennskunni en þó sjálfstætt. Einnig Eyrún systir hans og maður hennar Steigrímur Jónsson.
    Það er því oft líflegt hjá Kálfhotsfólkinu þar sem hestamennskan er lífsfylling og atvinna. S.S.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link