Isibless.de verðlaunar
Þórður Þorgeirsson, alþjóðlegur kynbótaknapi Isibless, tekur Spuna frá Vesturkoti til kostanna á LM2011.
Á WorldFeng er frétt um verðlaunaveitingar vefsíðunnar www.isibless.de í þýskalandi, sem er einn fjölsóttasti hestavefurinn fyrir þýskumælandi. Þórður Þorgeirsson er kynbótaknapi ársins á alþjóðavísu að mati Isibless.
Mikið var um dýrðir á vetrarhátíð Isibless í Þýskalandi, sem Henning Drath eigandi vefsíðunnar „Isibless.de“ stóð fyrir um síðustu helgi. Tæplega 300 manns fylgdust með afhendingu hinna svokallaðra BlessAwards sem veitt voru í fyrsta skipti í 9 mismunandi flokkum. Um 2.500 lesendur vefsíðunnar tóku þátt kosningunni og eru úrslit sem hér segir:
Ræktunarmaður ársins: Uli Reber, Lipperthof
Ræktunarhross ársins: Teigur vom Kronshof
Kynbótaknapi ársins (innlendur): Frauke Schenzel
Kynbótaknapi ársins (alþjóðl.): Þórður Þorgeirsson
Efnilegasta ungmenni ársins: Johanna Beuk
Besta mót ársins: Kronshof Special
Íþróttahross ársins: Tígull vom Kronshof
Íþróttaknapi ársins (innlendur): Frauke Schenzel
Íþróttaknapi ársins (alþjóðl.): Anne Stine Haugen
Sérstaka viðurkenningu fyrir „Inspiration-Motivation-Engagement“ hlutu: Kristín Halldórsdóttir, Herbert (Kóki) Ólafsson, Team WM 2013
Uli Reber frá Lipperthof var vel að viðurkenningunni kominn fyrir framúrskarandi árángur sinn í hrossarækt á síðasta ári, en fjögur hross frá honum kepptu fyrir hönd Þýskalands í flokki kynbótahrossa á HM í Austurríki síðast liðið sumar.
Það kom engum á óvart að stóðhesturinn Teigur vom Kronshof í eigu Lothar Schenzel skyldi verða fyrir valinu sem kynbótahross ársins, en Teigur hlaut á HM í Austurríki hæsta dóm sem þýskt kynbótahross hefur fengið á kynbótasýningum undanfarinna ára (aðaleinkunn 8.63, b. 8.31, h. 8.84).
Frauke Schenzel var einstaklega sigursæl á stórmótum í Þýskalands og á HM í Austurríki bæði sem íþrótta- og kynbótaknapi. Hún átti þennan heiður því vel skilið ásamt þeim Þórði og Anne Stine á alþjóðlegum vettvangi.
Titilinn efnilegasta ungmennið hlaut Johanna Beuk fyrir árangur sinn með stóðhestinn Merkur vom Birkenlund á síðustu heimsleikum. Og þá var Kronshof special fyrir valinu besta mót ársins. Eins og sjá má sópaði Kronshof fjölskyldan með Frauke í fararbroddi sópaði að sér viðurkenningum.
Að síðustu var veitt sérstök viðurkenning sem kallaðist „Inspiration – Motivation – Engagement“ og útleggst eitthvað á þá leið „hugmyndaauðgi-hvatning-framtaksemi“. Þessa viðurkenningu fengu Kristín Halldórsdóttir skrásetjara WorldFengs í Þýskalandi, Herbert „Kóki“ Ólason talsmaður íslenska hestsins í áraraðir og undirbúningsteymi heimsleikanna í Berlín 2013 með Fritz Finke og Carsten Eckert fremsta í flokki. WorldFengur samfagnar með Kristínu Halldórsdóttur, enda hefur hún verið einn af drifkröftum WorldFengs verkefnisins í 10 ára sögu þess.
Nánar má sjá frétt um verðlaunaafhendinguna á vefsíðu „Isibless.de“ ásamt myndbandi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári