Stóðhestar til styrktar LAUF
Einn heppinn fær að fara í reiðtúr á Spuna frá Vesturkoti í kvöld. Miði er möguleiki.
Á annað hundrað folatollar verða boðnir upp á Stóðhestaveislu í Ölfushöllinni í kvöld. Allur ágóði af uppboðinu sem og af sölu happdrættismiða rennur til góðs málefnis. Styrkinn í ár fær LAUF félag flogaveikra, en honum verður varið til þróunar og uppbyggingar íþrótta- og tómstundastarfs flogaveikra barna og unglinga. Í fyrra rann ágóðinn af uppboðinu og happdrættinu til krabbameinssjúkra barna.
Boðnir verða upp tollar meðal annars undir þá Álf frá Selfossi og Spuna frá Vesturkoti, en þeir taka báðir þátt í sýningunni. Þeir sem hreppa tollana undir þá fá jafnframt að fara í reiðtúr þessum súper gæðingum, svo til mikils er að vinna! Einnig verður boðin upp tollur undir Arion frá Eystra-Fróðholti og margar fleiri stjörnur.
Hægt verður að kaupa happdrættismiða á staðnum og rennur allur ágóði af sölunni í söfnunina til handa LAUF. Í verðlaun eru á annað hundrað folatollar og hestaferð á Löngufjörur með Óla Flosa svo eitthvað sé nefnt. Miðinn kostar aðeins 1.000 krónur.
Forsala aðgöngumiða stendur yfir til hádegis í dag, laugardag, og öruggast að tryggja sér í miða fyrir þann tíma. Húsið opnar kl. 19.00 og sýningin hefst kl. 20. Rétt er að minna einnig á ungfolasýningu HS sem fram fer á sama stað fyrr í dag og auglýst er hér á vefnfum. Semsagt, heljarinnar hrossaræktardagur í Ölfushöllinni í dag, 7. apríl – Allir velkomnir!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH