Einstaklingssýningar kynbótahrossa á LM2012

  • 10. apríl 2012
  • Fréttir
Stefnt að "generalprufu" í Víðidal fyrir Landsmót

Tilkynning frá fagráði í hrossarækt:

Fagráð hefur samþykkt að einstaklingssýnd kynbótahross verði dæmd mánudag, þriðjudag og miðvikudag á beinni braut á kynbótavelli við félagsheimili Fáks, riðnar verði að hámarki átta ferðir í stað tíu. Dómur á feti miðist við merktan 100 metra kafla  næst dómhúsi.

Á miðvikudagskvöldi og á fimmtudegi fari fram á sama velli hefðbundin yfirlitssýning kynbótahrossa þar sem riðnar verði allt að sex ferðir svo sem vant er.  

Á föstudegi verði sýnd á aðalvelli til kynningar þau einstaklingsdæmdu hross sem ekki ná verðlaunasætum, þar verði þau fimm í holli og riðnir þrír hringir á hringvelli og ein ferð fram og til baka á beinni braut.

Á laugardegi verði verðlaunaafhending 10 efstu hrossa í hverjum flokki einstaklingssýndra hrossa. Fyrst verði hross í sætum 6-10 sýnd saman, þá sýnd hross í 1-5 sæti og loks fari fram verðlaunaafhending þessara 10 efstu.
Stefnt skal á prófun nýja fyrirkomulagsins og tímamælingu á vallarsvæðinu í Víðidal nokkru fyrir mótið. Mikilvægt er að fara yfir alla verkferla kynbótahluta landsmótsins og skipuleggja framkvæmdina í þaula.   

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link