Að veðja á réttan hest
Spámenn meðal hestaunnenda geta nú veðjað á sigurvegara í úrslitum A og B flokks gæðinga á veðmálasíðunni betsson.com. Er þetta í fyrsta sinn sem boðið er upp á að veðja til um úrslit á landsmóti hestamanna.
Samkvæmt veðmálasíðunni núna eru Loki frá Selfossi og Hrímir frá Ósi taldir jafn sigurstranglegir í B flokki gæðinga en í A flokki gæðinga er það Fláki frá Blesastöðum sem ber höfuð og herðar yfir aðra keppendur.
Úrslitin fara fram á morgun, sunnudag, en hér má nálgast spádóma frá notendum betsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH