Skráningu alveg að ljúka !
FT hefur skipulagt hópferð fyrir FT félaga austur fyrir fjall þar sem Guðmar Þór mun taka á móti hópnum fimmtudaginn 30. janúar.
18:00 Brottför frá Olís við Rauðavatn með rútu
19:00 Forsýning fyrir FT félaga
20:00 Matur – eitthvað sem jarmar
22.30 Brottför í bæinn
Eftir matinn mun Guðmar sýna okkur um svæðið og kynna fyrir okkur starfsemina. Því næst höldum við á barinn þar sem kaldur á krana verður í boði á góðu verði.
Verð: 2500.- hvort svo sem farið er með rútu eða ekki
Skráning verður að berast fyrir hádegi mánudaginn 27. janúar á [email protected] og fram verður að koma hvort einstaklingurinn ætli í rútuna. Hvetjum við fólk til að skrá sig sem fyrst þar sem fjöldatakmarkanir eru í rútuna. Skráningagjald er greitt við inngang í Fákaseli.
Ath. Þessi ferð er aðeins fyrir skuldlausa félaga FT.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH