Kvistur frá Skagaströnd úr leik

  • 28. júní 2012
  • Fréttir
Kvistur frá Skagaströnd úr leik

Stóðhesturinn Kvistur frá Skagaströnd er úr leik í A-flokkskeppni Landsmótsins, en hann hafði unnið sér þátttökurétt í milliriðlum.

Kvistur er mjög vinsæll kynbótahestur og nú fyrir mót var hann sleginn af hryssu þegar verið var að halda undir hann á húsi. Að sögn Guðmundar Björgvinssonar er Kvistur að hlífa sér og er því langt frá því að vera eins og hann á að sér að vera.

Kvistur hlaut 8,91 í einkunn í úrtöku A-flokks hjá Hestamannafélaginu Herði nú í vor og var af mörgum talinn líklegur til að blanda sér í baráttuna um toppsæti hér á LM2012.

Tveir synir Kvists voru sýndir í 4 vetra flokki stóðhesta og eru þeir í fjórða og fimmta sæti í þeim flokki fyrir yfirlit sem fram fer í dag. Þetta eru þeir Kolskeggur frá Kjarnholtum (8,21) og Steinarr frá Skipaskaga (8,10). Þeir verða því að halda uppi merkjum föður síns á þessu móti, en alltaf er leiðinlegt þegar hross ná ekki á klára stórmót vegna meiðsla.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link