WorldFengur opnaður að hluta
Upprunaættbók íslenska hestsins, WorldFengur verður opnaður fyrir alla að hluta fyrir lok ársins 2011.
Að sögn Jóns B. Lorange, forstöðumanns tölvudeildar hjá Bændasamtökum Íslands, verður það gert til að stuðla að markvissari markaðssetningu íslenska hestsins innanlands og erlendis. “Opnun WorldFengs hefur verið í deiglunni nokkuð lengi og kemur fram í áliti nefndar Landbúnaðarráðuneytisins um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis að heppilegast væri að opna hann til að styrkja kynningar- og útflutningsstarfið.”
WorldFengur er besti markaðsgluggi fyrir íslenska hestinn segir Jón Baldur, sem jafnframt er verkefnisstjóri WorldFengs verkefnisins, og í samræmi við samkomulag milli Bændasamtaka Íslands og FEIF, alþjóðasamtaka eigenda íslenska hestsins var því ákveðið að opna takmarkaðan hluta gagnagrunnsins.
Allir munu því fá aðgang að grunnupplýsingum um hesta, dómaskrám allra kynbótasýninga og öllum niðurstöðum World Ranking móta úr Sportfeng, hérlendis, og Icetest, erlendis, og stöðulistum. Enn mun þurfa að vera áskrifandi með aðgangsorðum til að hafa aðgang að langstærstum hluta WorldFengs svo sem heimarétt, afkvæmalista, ættartré, skýrslum, einstökum kynbótadómum, DNA ætternisupplýsingum og fleiru.
WorldFengur er upprunaættbók íslenska hestsins. WorldFengur safnar saman upplýsingum um íslenska hesta innan landa FEIF (alþjóðasamtök eigenda íslenska hestsins) og eru þær aðgengilegar á vefnum. WorldFengur er samstarfsverkefni Bændasamtaka Íslands og FEIF um að þróa einn og viðurkenndan miðlægan gagnagrunn um íslenska hestinn hvar sem er í heiminum. Í WorldFeng er að finna viðamiklar upplýsingar um á þriðja hundrað þúsund íslenskra hesta og eykst fjöldi þeirra á hverjum degi. Mætti t.d. finna upplýsingar um ættartölu, afkvæmi, kynbótadóma, eigendur, ræktendur, kynbótamat, liti, örmerki og fleira. WorldFengur varð 10 ára á þessu ári, en hann opnaði formlega á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Austurríki í ágúst 2001.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH