Kynbótasýning felld niður
Kynbótasýningin á Sörlastöðum sem vera átti dagana 20.-24. maí verður felld niður vegna dræmrar þátttöku. Aðeins 25 hross voru skráð á sýninguna. Haft verður samband við þá sem eiga skráð hross á þessari sýningu og þeim boðið að færa hrossin á aðra sýningar eða fá að fullu endurgreitt.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 516-5000 eða með því að senda t-póst á netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH