Frábærir hópar en ólíkir
Þá hafa allir afkvæmahestar Landsmótsins komið fram með afkvæmi sín utan Álfur sem tekur á móti Sleipnisbikarnum sem hæsti afkvæmahesturinn til Heiðursverðlauna.
Afkvæmahóparnir voru allir mjög vel heppnaðir en hestgerðirnar sem þeir eru að koma fram með eru æði ólíkar. Sem dæmi eru afkvæmi Kráks, Eldjárns og Þristar flest öll klárhross, en afkvæmi Aðals, Þórodds, Markúsar og Hugins flest alhliða hross.
Þeir hestar sem fram komu til 1.verðlauna fyrir afkvæmi voru Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Þytur frá Neðra-Seli, Eldjárn frá Tjaldhólum, Krákur frá Blesastöðum og Víðir frá Prestbakka sem stóð efstur þeirra.
Erfitt að draga miklar ályktanir af aðeins fimm afkvæmum, en af athyglisverðum afkvæmaum Gaums má nefna stóðhestinn Patrik frá Reykjavík og 4 vetra hryssu sem Edda heitir frá Egilsstaðabæ. Þytsafkvæmin voru öll mjög áþekk en gaman var að sjá ræktanda hestsins Finn Egilsson sitja hestinn sjálfur.
Í Eldjárnshópnum bar mest á hryssunum tveimur sem stóðu sig svo vel hér í kynbótasýningunni, en það eru þær Kvika frá Leirubakka og hestagullið Fura frá Hellu sem fjallað var um hér fyrr í dag.
Krákshópurinn skartaði mörgum frábærum tölthrossum enda er kynbótamat töltsins hæst hjá honum. Það var gaman að sjá Krák koma fram með sínum frábæru afkvæmum, en mest bar á Brynju frá Hrauni og landsmótssigurvegara 4 vetra flokks LM2011 Úlfhildi frá Blesastöðum. Öll hrossin utan Mjölni eru frábær klárhross.
Ljóst er að Aðall frá Nýjabæ er frábær reiðhestafaðir og voru afkvæmi hans rúm og hreingeng. Þar leiddi hópinn Vaðall frá Akranesi sýndur snilldarvel af Þórði Þorgeirssyni, en einnig bar talsvert á hinni 4 vetra gömlu Emilíu frá Feti sem sýndi á köflum snilldar takta.
En efstur 1.verðlauna hesta fyrir afkvæmi er Víðir frá Prestbakka. Hópurinn var mjög einsleitur og ljóst er að Víðir er mjög kynfastur. Mest bar samt á Magna frá Hólum, en hann hlaut 9,5 fyrir tölt þegar hann var sýndur í kynbótadómi í vor.
Hér er myndskeið af afkvæmasýningu Kráks frá Blesastöðum 1A.
Umfjöllun um Heiðursverðlaunastóðhestanna von bráðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH