Uppbygging á Króki-

  • 22. desember 2011
  • Fréttir
Uppbygging á Króki-

Miklar framkvæmdir hafa verið í gangi á Króki í Ásahreppi en Göran Montan og fjölskylda hans eru að byggja þar upp glæsilega aðstöðu til að rækta hross og reka starfsemi því tengda…

Byggð hefur verið ný reiðhöll, 20x60m og verið er að innrétta glæsilegt hesthús í byggingu þeirri sem notuð var sem reiðhöll áður, en það hús er 16x40m að grunnfleti.
Það er Reynir Örn Pálmason sem stjórnar þessari uppbyggingu og verður bústjóri og aðal þjálfari á búinu.
Eiðfaxi skrapp í heimsókn að Króki til að skoða framkvæmdir en verið er að taka síðustu skrefin til að undirbúa inntöku hrossa milli jóla og nýárs.
Þegar rennt var í hlað var allt á fullri ferð, iðnaðarmenn að setja upp innréttingar og starfsfólk búsins að gera klárt. Það er greinilega mikill metnaður  lagður í framkvæmdirnar, skipulag allt eins og best verður á kosið og innréttingar af bestu gerð, smíðaðar af fyrirtækinu Viðgerðir og þjónusta á Selfossi en þeir aðilar hafa langa og mikla reynslu af smíðum af þessu tagi.
Þrátt fyrir stærð og umfang hesthússins hefur tekist að skapa hlýlega umgjörð um hrossin, allt timburklætt og eyk í innréttingum.
Reynir Örn gekk með blaðamanni um svæðið og útskýrði skipulagið.
„Hér er ætlunin að hýsa og þjálfa hrossin sem ræktuð verða hér á Króki en staðurinn gefur einnig tækifæri til þess að selja hestafólki og öðrum ræktendum þjónustu, í bæði þjálfun og námskeiðahaldi. Ætlunin er til dæmis að nýta rými hér sem svefnaðstöðu fyrir fólk sem sækir námskeið og geta veitt eins góða þjónustu og mögulegt er.
Mögulega verður eitthvað pláss í hesthúsunum leigt til atvinnufólks sem vill koma sér hér fyrir og hafa aðgang að þeirri aðstöðu sem er í uppbyggingu“ sagði Reynir.
Eiðfaxi mun verða aftur á ferðinni á Kroki þegar starfsemin er komin í fullan gang.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link