Stórmót Hrings

  • 14. ágúst 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Íþróttakeppni.

Helgina 22.-24. ágúst mun mótanefnd Hrings standa fyrir opnu íþróttamóti á Hringsholtsvelli. Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur. Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Tölti- opnum flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki

Fimmgangi, opnum flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki

Fjórgangi, opnum flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki

100m skeiði

150m skeiði

250m skeiði

Gæðingaskeiði

Í skeiðgreinum verður rafræn tímataka.

Skráningar fara fram í gegnum tengilinn „Skráning í mót“ á heimasíðu Hrings, hringurdalvik.net. Þar skal merkja við öll stjörnumerkt atriði.

Skráningu lýkur miðvikudaginn 20. ágúst kl 20.00.

Skráningargjöld skulu greidd inn á reikning félagsins fyrir miðvikudaginn 20. ágúst kl 20.30 og send staðfesting á sae[email protected] , skýring.

Skráningargjöld: kr. 2500 fyrir fyrstu skráningu kr. 1500 fyrir næstu skráningar pr.knapa í opnum flokki en kr. 1500 hver skráning hjá ungmennum, unglingum og börnum.

Upplýsingar vegna greiðslu skráningargjalda:

Kennitala félagsins: kt. 540890-1029 Reiknisnúmer: 1177-26-175 – skýring.

Mótanefnd áskilur sér rétt að fella niður flokka vegna dræmrar þátttöku.

Áætlað að hafa grillveislu á laugardagskvöldið og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig hjá[email protected], kr. 2500.- fyrir mannin, kr.1000.- fyrir 6-12 ára og frítt fyrir 0-5 ára.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link