Gæðingur dæmdur úr leik á hæpnum forsendum
Gæðingadómarar Landssambands hestamannafélaga dæma eftir „innanhússreglum“ Gæðingadómarafélagsins, sem ekki eru aðgengilegar á vef LH og ekki í samræmi við lög og reglur LH um framkvæmd gæðingakeppninnar. Þetta virðist blasa við eftir að Trausti Þór Guðmundsson fékk ógildingu á sýningu sem hann reið í A flokki gæðinga á úrtökumóti Sleipnis á Selfossi um helgina á hestinum Tinna frá Kjarri. Tekið skal fram að völlurinn á Selfossi er svokallaður Þ völlur, þar sem skeiðbrautin er samfelld annarri langhliðinni, en ekki sér við hlið hringvallarins, eins og algengt er orðið í dag.
Reið hefðbundið prógram
„Ég reið mjög hefðbundið prógram, sem ég hef oft riðið áður og margir aðrir að því er ég best veit án þess að athugasemdir hafi verið gerðar við það,“ segir Trausti Þór. „Ég byrjaði á skammhlið austan megin og reið á vinstri hönd. Fimmtu langhlið, í vestur, reið ég á feti og fór í beinu framhaldi út á enda á skeiðbrauinni og reið skeið til baka. Eftir því sem dómarar segja þá hefði ég átt að ríða inn á skammhliðina og ljúka sýningu á feti þar og ríða síðan út á skeiðbrautina. Það er hins vegar ekki stafur fyrir því í lögum og reglum LH um framkvæmd gæðingakeppninnar og þetta er alveg nýtt fyrir mér. En mér skylst þó að fleiri hafi fengið ógildar sýningar af sömu ástæðu á undanförnum árum.
Ég kærði dóminn strax í kjölfarið og fékk svar um hæl að úrskurðurinn stæði. Ég og Helgi Eggertsson í Kjarri, eigandi hestsins, munum hins vegar fylgja þessu máli eftir með kæru til LH og leita réttar okkar. Ég vonast líka til að umfjöllun um þetta mál verði til þess að menn fari að vinna með faglegri hætti. Það er verið að kynna gæðingakeppnina út um allan heim og það er okkur til háðungar ef kennarar okkar í gæðingadómum eru að kenna annað en stendur í lögum og reglum LH, sem eru bæði á íslensku og ensku og aðgengilegar á vefnum,“ segir Trausti Þór.
Bagalegt ef rétt reynist
Lárus Hannesson, formaður Gæðingadómarafélagsins, segir að svo virðist í fljótu bragði sem Trausti Þór hafi nokkuð til síns máls. Ekki sé hægt að lesa það úr kafla 7.4.3 um framkvæmd gæðingakeppninnar að sýning hans sé ógild.
„Lög og reglur LH eru yfirgripsmiklar og sennilega ekki margir sem kunna reglurnar um gæðingakeppnina utanbókar. Ég hafði sjálfur ekki veitt þessu tiltekna atriði athygli og að hugsanlega sé misræmi þarna á milli. Ég mun ræða þetta við mitt fólk og fara yfir reglurnar með fræðslunefnd og stjórn. Það virðist fljótt á litið sem farið hafi verið eftir reglum sem eru ekki skráðar í lög og reglur LH, sem er auðvitað eitthvað sem þarf að lagfæra ef rétt reynist. Það er mjög mikilvægt að svona hlutir séu á hreinu og allir viti nákvæmlega að hverju þeir ganga, bæði keppendur og dómarar,“ segir Lárus.
Til glöggvunar þá er umræddur kafli í Lögum og reglum LH númer 7.4.3 um framkvæmd gæðingakeppninnar látinn fljóta hér með. Eins og sjá má er hvergi kveðið á um að ljúka skuli sýningu gangtegundar á skammhlið. Rétt er einnig að geta þess að til að eiga möguleika á fullnaðar einkunn fyrir fet þarf ekki að sýna nema 3/4 úr langhlið og þarf því ekki að fara inn á skammhliðina þess vegna.
„7.4.3 Framkvæmd keppni
Á innanfélags- og smærri mótum hefst forkeppnin á því að hestunum er riðið í dóm, einum í einu, eftir skráningarröð. Mótstjórn er þó heimilt að leyfa 3-5 hesta í dómi í einu, samkvæmt sérstökum reglum LH um gæðingakeppni. (sjá kafla 7.8)
Keppnin hefst á miðri skammhlið og skal keppandi ríða stystu leið, er hann kemur inn á völlinn, að byrjunarskammhlið sinni. Hann gefur síðan til kynna með greinilegri höfuðhneigingu að hann hafi hafið keppni. Honum er einnig frjálst í hvaða röð hann sýnir þau atriði sem dæma skal.
Sýnandi ræður á hvora höndina hann hefur keppni og má snúa við einu sinni inni á hringnum Keppandi hefur þrjá hringi til umráða. Noti sýnandi beinu brautina áður en hann hefur lokið þremur hringjum, ber honum að ljúka sýningu á skammhlið. Dómarar gefa hestunum einkunn fyrir hvert dæmt atriði með spjöldum sem stjórnandi les.
Heimilt er að sýna einungis heildareinkunn hests að lokinni keppni hans. Þá skal sýna útprentað á blaði sundurliðun einkunna hvers hests og röð keppenda eftir einkunnum, strax að lokinni hverri keppnisgrein. Á lands- og fjórðungsmótum skal sýna röð keppenda eftir einkunnum á tölvuskjá að loknum dómi hvers hests.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH