Gæðingafimi í fyrsta sinn
Valdimar Bergstað mætir á Hugleik frá Galtanesi í gæðingafimikeppni KS-deildarinnar annað kvöld. Mynd/Sigurlína Magnúsdóttir
Keppt verður í gæðingafimi í KS-deildinni annað kvöld. Keppnin fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og hefst keppnin kl. 20:00.
„Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í þessari grein í KS-Deildinni og verður mjög spennandi að sjá hvernig tiltekst. Sést hefur til nokkura liða á æfingum í Svaðastaðahöllinni og greinilegt að mikið er lagt undir. Liða- og einstaklingskeppni deildarinnar er orðin mjög jöfn og verður hart barist um þau stig sem í boði eru.Keppnin verður sýnd í beinni útstendingu á heimasíðu reiðhallarinnar svadastadir.is gegn vægu gjaldi. Við hvetjum alla til að mæta í höllina á miðvikudagskvöldið og sjá þessa fyrstu keppni í gæðingafimi í KS-Deildinni,“ segir í tilkynningu frá KS-deildinni og meðfylgjandi er ráslisti mótsins.
1 Viðar Bragason – Lífland/Efri-Rauðalækur – Þytur frá Narfastöðum
2 Anna K. Friðriksdóttir – Íbess-Gæðingur – Glaður frá Grund
3 Gísli Gíslason – Draupnir/Þúfur – Trymbill frá Stóra-Ási
4 Fanney D. Indriðadóttir – TopReiter -Brúney frá Grafarkoti
5 Lilja Pálmadóttir – Hofstorfan/66°norður – Mói frá Hjaltastöðum
6 Líney M. Hjálmarsdóttir – Hrímnir – Þytur frá Húsavík
7 Guðmundur K Tryggvason – Lífland/Efri-Rauðalækur – Rósalín frá Efri Rauðalæk
8 Teitur Árnason – TopReiter – Óskahringur frá Miðási
9 Valdimar Bergsstað – Hrímnir – Hugleikur frá Galtanesi
10 Mette Mannseth – Draupnir/Þúfur – Hnokki frá Þúfum
11 Jóhann B. Magnússon – Íbess-Gæðingur – Embla frá Þóreyjarnúpi
12 Bjarni Jónasson – Hofstorfan/66°norður – Dynur frá Dalsmynni
13 Hallfríður Óladóttir – TopReiter – Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum
14 Þórarinn Eymundsson – Hrímnir – Taktur frá Varmalæk
15 Elvar Einarsson – Hofstorfan/66°norður – Gjöf frá Sjávarborg
16 Baldvin A Guðlaugsson – Lífland/Efri-Rauðalækur – Öngull frá Efri Rauðalæk
17 Hanna Rún Ingibergsdóttir – Íbess-Gæðingur -Nótt frá Sörlatungu
18 Þorsteinn Björnssson – Draupnir/Þúfur – Króna frá Hólum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH