Þrítugir Íshestar fá nýja eigendur
Í Hestablaðinu, sem kemur út fimmtudaginn 24. maí, er viðtal við Fannar Ólafsson, framkvæmdastjóra og einn nýrra eigenda Íshesta. Þetta fyrirtæki, sem á einna stærstan þátt í að marka slóð hestatengdrar ferðaþjónustu á Íslandi, er þrjátíu ára á þessu ári. Fannar segir að fyrst um sinn verði ekki gerðar miklar breytingar á rekstrinum, en áframhald verði á þróun nýrra hestaferða. Íshestar reka öfluga starfssemi allt árið og aðsókn í ferðir að vetrinum eru sífellt að aukast.
Lesið viðtal við Fannar Ólafsson í Hestablaðinu. Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH