Heiðursverðlaun eru engin heiðursverðlaun

  • 23. apríl 2012
  • Fréttir
Segir Einar E. Gíslason á Syðra-Skörðugili

Í Hestablaðinu – Stóðhestar og hrossarækt, sem kemur út fimmtudaginn 26. apríl, er grein eftir Einar E. Gíslason á Syðra-Skörðugili. Hann segir að heiðursverðlaun stóðhesta fyrir afkvæmi í dag séu engin heiðursverðlaun. Of mikið sé hægt að fela í dómum og sortéra úr, og gefa þannig villandi mynd af raunverulegu kynbótagildi viðkomandi stóðhests, einkum geðslagi afkvæmanna.

Einar byggir skoðanir sínar á fimmtíu ára reynslu í hrossarækt og hrossadómum. Hann leggur til að teknar verði upp afkvæmaprófanir, sem verði einskonar þröskuldur upp í heiðursverðlaun.

Lesið um tillögu Einars í Hestablaðinu – Stóðhestar og hrossarækt. Áskrifendur Hestablaðsins fá blaðið frítt, sent heim. Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link