Tígulás frá Marteinstungu
Í Hestablaðinu – Stóðhestar og hrossarækt, urðu þau leiðu mistök að ekki fylgdi réttur dómur stóðhestinum Tígulás frá Marteinstungu. Hann var sýndur á LM2011 í 6 vetra flokki. Sinn hæsta dóm hlaut hann á Gaddstaðaflötum 2011:
Fyrir sköpulag 8,26: Höfuð 8,5 – Framhluti 8,5 – Bak/Lend 8,5 – Samræmi 8,5 – Fótagerð 8,0 – Réttleiki 7,5 – Hófar 8,0 – Prúðleik 8,0.
Fyrir kosti 8,57: Tölt 8,5 – Brokk 8,5 – Skeið 8,5 – Stökk 8,0 – Vilji/Geð 9,0 – Fegurð 8,5 – Fet 9,0 – Hægt tölt 8,5 – Hægt stökk 7,5.
Umsögn: Hágengur, rúmur og geðgóður gæðingur.
Tígulás er undan Tígli frá Gígjarhóli og Brönu frá Ásmúla, Kjarvalsdóttur frá Sauðárkróki.
Upplýsingar um notkun veitir Gunnar Guttormsson í síma 869-0498 og 487-1301
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH