Húsasmiðju- og Knapa mót

  • 6. apríl 2011
  • Fréttir
Húsasmiðju- og Knapa mót

Hestamannafélagið Skuggi stendur fyrir töltmóti í Faxaborg, Borganesi laugardaginn 9. apríl n.k.  í samvinnu við Húsasmiðjuna og hestavöruverslunina Knapann.
„Keppt verður í polla– barna – og unglingaflokki og í þremur flokkum 17 ára og eldri, 1 fl. opnum flokki, 2. fl. kvenna og 2. fl. karla. Allir velkomnir. Mótið hefst kl. 17 og það er frítt inn fyrir áhorfendur.
Skráningar þurfa að koma fyrir kl. 22, fimmtudaginn 7. apríl og berist á netfangið [email protected] . Við skráningu þarf að taka fram uppá hvora hönd á að ríða í forkeppni sem og kennitölu knapa og IS númer hests, auk flokks. Skráningargjöld eru 1.000.- í barna – og unglingaflokki, frítt í pollaflokk. Í flokkum fullorðinna er gjaldið 1.500.- á fyrstu skráningu og 1.000.- á næstu. Allar nánari upplýsingar veitir Reynir í s. 860-9014.
Skráningargjöld leggist inn á reikning 0326 – 13 – 004810, kt.481079-0399. Kvittun sendist á netfangið [email protected] og taka þarf fram nafn knapa og hests,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd hestamannafélagsins Skugga.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link