Níutíu kynbótahross hafa náð lágmörkum inn á LM2012
Um 90 kynbótahross hafa náð lágmörkum inn á LM2012 í Reykjavík og þeim fjölgar dag frá degi. Með langhæsta einkunn inn á mót er stóðhesturinn Hrannar frá Flugumýri II, sem hlaut 8,85 í aðaleinkunn á kynbótasýningu á Selfossi, setinn af Þorvaldi Árna Þorvaldssyni. Hrannar, sem er 6 vetra, er undan Krafti frá Bringu og Hendingu frá Flugmýri II, Kveiksdóttur frá Miðsitju.
Flest hross eru kominn inn í 5 vetra flokkum, 20 hryssur og 16 stóðhestar. Tólf 4 vetra hryssur hafa náð lágmarkseinkunn en 5 stóðhestar. Sýningar standa nú yfir á Gaddstaðaflötum við Hellu og á Vindheimamelum í Skagafirði. Stórar sýningar eru eftir á Dalvík og Mið-Fossum í Andakíl.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH