Bleika töltmótið

  • 9. febrúar 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands

Bleika töltmótið verður haldið á konudaginn 19. febrúar. Mótið er einungis ætlað konum 17 ára og eldri. Skráningagjöld eru frjálst framlag og renna óskert til Krabbameinsfélags Íslands til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini en þó að lámarki 3.000 kr. Mótið hefst klukkan klukkan 12:30 og verður nánar auglýst þegar nær dregur.

Bleika slaufan er alþjóðlegt tákn í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Aðstandendur mótsins hvetja knapa og áhorfendur að klæðast bleiku í tilefni dagsins og sýna samstöðu. Skráningu skal senda á netfangið [email protected] 13 febrúar frá klukkan 18-22 þar sem fram kemur IS númer hests, keppnisflokkur, kennitala knapa og símanúmer og upp á hvora hönd er riðið. Einnig er tekið á móti skráningu í gegnum síma: 894-3980 Auður, 893-3559 Drífa, 660-1750 Laufey og 863-4252 Jóhanna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link