Sex hross drápust úr heyeitrun á Eystra-Fróðholti

  • 5. janúar 2012
  • Fréttir
Dóttir Eldingar frá Haukholtum í hópnum

Sex hross  drápust úr heyeitrun á bænum Eystra-Fróðholti í Landeyjum í dag og í gær. Ársæll Jónsson, bóndi á Eystra-Fróðholti, segir að líklega sé um svokallaða hræeitrun að ræða, sem sé bundin við eina heyrúllu. Engin veikindamerki eru á öðrum hrossum, alla vega enn sem komið er. Í hópnum sem drapst eru fjögur folöld, ein tvítug hryssa og eitt þriggja vetra mertrippi. Þrevetur hryssan hét Eydís frá Haukholtum, undan Eldingu frá Haukholtum og Sæ frá Bakkakoti. Hún var í eigu Daníels Jónssonar og Hilmars Sæmundssonar. Elding stóð efst í 6 vetra flokki hryssna á LM2008. Folöldin voru einnig öll vel ættuð.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link