Stóðhestaveisla í Ölfushöllinni

  • 8. apríl 2011
  • Fréttir

Ómur frá Kvistum er einn þeirra stóðhesta sem sýndir verða á Stóðhestaveislunni. Knapi á myndinni er Kristjón Kristjánsson, en knapi á sýningunni verðu Hinrik Bragason.

Safnað fyrir krabbameinssjúk börn

Stóðhestaveisla verður haldin í Ölfushöllinni á morgun, laugardaginn 9. apríl. Dagskráin hefst strax um klukkan 10 um morguninn með ungfolasýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands þar sem fram koma fjölmargir glæsilegir og ættstórir ungfolar, þ.á.m. Stormur frá Bjarnanesi 1 undan Glampa frá Vatnsleysu og Snældu frá Bjarnanesi, og Álfssynirnir Klakinn frá Skagaströnd og Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði, Klakinn undan Sunnu frá Akranesi og Lukku-Láki sonur Lukku frá Stóra-Vatnsskarði.

Klukkan 15 hefst svo sjálf stóðhestaveislan og eins og í öllum góðum veislum verðu öllu því besta tjaldað til. Yfir 30 glæsilegir hestar verða kynntir. Oddur frá Selfossi verður heiðraður sérstaklega og mun kappinn að sjálfsögðu mæta ásamt afkomendum sínum. Auk þess verða sýnd afkvæmi þeirra Stála frá Kjarri, Kletts frá Hvammi og Eldjárns frá Tjaldhólum.

Á stóðhestaveislunni verða einnig boðnir upp folatollar undir nokkra af albestu stóðhestum landsins, auk þess sem hægt verður að taka þátt í stóðhestahappdrætti þar sem fjöldi folatolla verður í vinning. Allur ágóði af bæði uppboðinu og happdrættinu mun renna óskiptur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og fólk er því hvatt til að leggja góðu málefni lið. Miðaverð á ungfolasýninguna og stóðhestaveisluna er 3.500 kr. og forsala fer fram í Ástund Austurveri og hjá N1 á Ártúnshöfða, Hveragerði, Selfossi og á Hvolsvelli.

 
Eftirtaldir hestar koma fram:
 
Oddur frá Selfossi heiðurshestur
Álmur frá Skjálg
Hruni frá Breiðumörk
Ketill frá Kvistum
Asi frá Lundum
Gandálfur frá Selfossi
Rómur frá Gíslholti
Fláki frá Blesastöðum
Þulur frá Hólum
Loki frá Selfossi
Hrímnir frá Ósi
Kórall frá Lækjarbotnum
Aspar frá Fróni
Eldjárn frá Tjaldhólum m/afkv
Afkvæmi Stála frá Kjarri
Afkvæmi Kletts frá Hvammi
Óskar frá Blesastöðum
Glóðafeykir frá Halakoti
Héðinn frá Feti
Korgur frá Ingólfshvoli
Snævar Þór frá Eystra-Fróðholti
Máttur frá Leirubakka
Vignir frá Selfossi
Sædynur frá Múla
Stígandi frá Stóra-Hofi
Jarpur frá Hrafnagili
Hrafndynur frá Hákoti
Hugur frá Ketilsstöðum
Þeyr frá Akranesi
Hugleikur frá Galtanesi
Möller frá Blesastöðum
Ómur frá Kvistum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link