Kvennaskemmtikvöld fyrir Herrakvöld Fáks
Allar fagrar og skemmtilegar konur, stúlkur og dömur ætla að koma saman í Veislusalnum í Reiðhöllinni fyrir Herrakvöldið í Fáki laugardagskvöldið 9. okt. nk. Boðið verður upp á hlaðborð með Sushi, kjúklingaspjót og djúpsteiktum humar á salatbeði á kr. 1.650,- og svo er ódýrt á barnum. Sennilega verður einnig vínkynning og jafnvel fleiri glaðningar og skemmtiatriði. Abba tónlistin mun óma úr hátölurunum og heyrst hefur að einhverjar ætli að mæta í Abbabúningi og stíga á svið en allt kemur þetta í ljós þegar nær dregur. Um að gera að taka daginn frá og mæta í Reiðhöllina áður en farið er á Herrakvöldið í félagsheimilinu.
Panta þarf borð á netfangið [email protected]
Skemmtinefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH