Skýrslur æskulýðsnefnda

  • 17. nóvember 2011
  • Fréttir
Skýrslur æskulýðsnefnda

Skýrslur æskulýðsnefnda hestamannafélaganna hafa verið færðar inn á  heimasíðu LH.

Nítján skýrslur bárust Landssambandinu í ár og innihalda þær upplýsingar um fjölbreytilegt æskulýðsstarf innan félaganna. Hestamannafélögin hafi verið iðin við að standa fyrir námskeiðum og reiðkennslum og fræðslu af ýmsu tagi, fjölbreyttum mótum s.s. smalamótum og þrautabrautum og bryddað upp á sniðugum nýjungum.

Skýrslur þessar eru mikilvægt verkfæri og heimild í öllu okkar æskulýðsstarfi og eru foreldrar, æskulýðsnefndarmenn og aðrir áhugasamir um gott starf innan æskulýðsnefnda, hvattir til að lesa skýrslurnar og nýta þær og hugmyndirnar sem þar koma fram í sínu starfi.

Á Formannafundi LH var fulltrúum hestamannafélagsins Harðar veittur Æskulýðsbikar LH fyrir framúrskarandi æskulýðsstarf á sl. starfsári.

Skýrslunar má nálgast hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link