Þoka líklegur handhafi Glettubikars
Í lok vikunnar verður ljóst hvaða hryssur uppfylla lágmörk til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi í ár. Heiðursverðlaun hljóta hryssur með 116 stig eða hærra í aðaleinkunn kynbótamats og eiga a.m.k. 5 dæmd afkvæmi. Ljóst er að þónokkrar hryssur munu bætast í hóp þeirra 34 hryssa sem heiðraðar hafa verið, en í fyrra voru þær óvenjumargar, átta talsins. Líklegt er að þær verði enn fleiri í ár því tugur hryssna uppfyllir nú lágmörkin fyrir síðustu uppfærslu kynbótamatsins.
Nokkuð örugg með Glettubikar ársins er Þoka frá Hólum en hún er með 126 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Þoka er 19 vetra undan Vafa frá Kýrholti og heiðursverðlaunahryssunni Þrá frá Hólum sem hlaut verðlaunin árið 2000. Þoka varð efst í flokki hryssa 7 vetra og eldri á landsmóti 2002 og hlaut þá 8,64 í aðaleinkunn og var þá jafnframt hæst dæmda kynbótahross mótsins. Til gamans má geta að Gígja frá Auðsholtshjáleigu, sem var í 2. sæti flokksins á eftir Þoku, hlaut einmitt Glettubikarinn í fyrra.
Dæmd afkvæmi undan Þoku eru: Orradóttirin Þóra (ae. 8,77) sigurvegari í elsta flokki hryssa á LM2011, Þeyr (ae. 8,46) Aronssonur frá Strandarhöfði, Þilja (ae. 8,17) undan Keili frá Miðsitju, Þrönn (ae. 8,31) undan Gusti frá Hóli og Þota Orradóttir (ae. 7,90).
Þoka verður fimmta hryssan úr ræktun Hólaskóla sem hlýtur heiðursverðlaun. Auk móður hennar hafa tvær systur hennar sammæðra, Þóra og Þrenna hlotið verðlaunin ásamt Þilju, dóttir Þrennu sem hlaut verðlaunin árið 2010.
Þoka er í eigu Ingu og Ingars Jensen frá Svíþjóð en Ingar tók þessa mynd af djásninu í síðustu viku þegar hann var staddur í Skagafirði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH