Of stór hófur eykur tíðni hófmeina
Mælst er til þess að setja reglur sem takmarka lengd hófa í 90 mm, en niðurstöður viðamikilla rannsókna á hófum kynbóta- og keppnishesta íslenskra hrossa sýndu fram á að hægt væri að tengja hófmein við lengri hófa.
FEIF fékk rannsóknarháskólann í Zürich og hestaspítalann í Vejle í Danmörku til að vinna rannsóknir á ástandi hófa og járninga á íslenskum keppnishestum. Rannsókninni er ætlað að meta gagnsemi reglugerðar FEIF um járningar og fótabúnað, sem tryggja á heilbrigði hófa.
Í 5. tbl. Eiðfaxa er tæpt á niðurstöðum rannsóknanna. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH