Hinn kunni hestamaður og ræktandi Magni Kjartansson frá Árgerði er látinn 85 ára að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð 30. nóvember síðastliðinn. Magni lætur eftir sig eiginkonu, þrjú fósturbörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Magni var fæddur að Klúki í Hrafnagilshreppi árið 1930. Hann flutti með foreldrum sínum að Miklagarði í Saurbæjarhreppi þegar hann var fjögurra ára gamall. Magni sýndi hestum alltaf mikinn áhuga í uppvextinum enda átti hestamennskan eftir að verða hans líf og yndi. Sem ungur strákur fór hann helst allra sinna ferða á hestbaki þrátt fyrir að bíll hafi verið til á heimilinu. Hans æðsti draumur var að verða hrossaræktandi og sá draumur varð að veruleika þegar hann keypti Árgerði árið 1963 og bjó þar alla tíð síðan ásamt eiginkonu sinni Þórdísi Sigurðardóttur.
Eiðfaxi vottar fjölskyldu Magna samúð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH