Baldvin frá Stangarholti fær nýtt hlutverk

  • 18. desember 2013
  • Fréttir
Stefnir á LM2014

Samkvæmt frétta á heimasíðu Sunnuhvols þá hefur Védísi Huld tekið við þjálfun gæðingsins Baldvins frá Stangarholti, en hann hefur verið í fremstu röð keppnishesta um árabil.

Í samtali við Reyni Örn á Króki fannst honum ekki rétt að láta hestinn standa úti í vetur. „Ég tók hann inn um daginn og vissi að það væri ekki mikill tími fyrir hann hér á búinu og datt þá í hug að hringja í þau og bjóða þeim hestinn til láns í vetur. Baldvin er þannig hestur að það fer ekki vel í hann að standa aðgerðalítill inni“ sagði Reynir Örn og bætti við að þau hafi tekið boði hans mjög vel.

Í frétt á heimasíðu Sunnuhvols kemur fram að stefnan sé sett á úrtöku fyrir LM2014 á Hellu.

Meðfylgjandi myndbrot er tekið af heimasíðu Sunnuhvols.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link