Ráslisti í Gæðingafimi
Það stefnir í svakalega veislu í gæðingafimi í meistaradeildinni í hestaíþróttum, sem þetta skiptið fer fram í Samskipahöllinni í Spretti næstkomandi fimmtudagskvöld. Það er nánast ómögulegt að spá fyrir um sigurvegara, svo sterkur er hestakosturinn hjá þeim gæðaknöpum sem ríða þessa keppni.
Sigurvegari síðastliðins árs Árni Björn Pálsson mætir með hestagullið Skímu frá Kvistum og er hún orðin árinu eldri og reynslunni ríkari þannig að þau eru til alls líkleg. Jakob Svavar Sigurðsson átti eftirminnilega sýningu í gæðingafiminni í fyrra á Gloríu frá Skúfslæk, þau mæta aftur og ætlar Jakob sér að gera betur en í fyrra og ná sér í efsta sætið. Ásmundur Ernir Snorrason varð í þriðja sæti í fyrra á Spöl frá Njarðvík, hann mætir sterkur til leiks á honum.
Liðið sem má segja að hafi átt kvöldið í fjórgangnum, Gangmyllan, stillir upp sterku liði og sendir sömu pör aftur til leiks þau Berg og Kötlu, Elín og Frama og Freyju og Álfastjörnu. Það ætti ekki að teljast ólíklegt að árangur þeirra yrði svipaður í gæðingafimi og hann var í fjórganginum. Það er gaman að sjá að skráð eru til leiks Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Héðinn Skúli frá Oddhól en þau hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi þeirra sem þau líta og munu að öllum líkindum sýna okkur skemmtileg tilþrif. Sigurður Óli Kristinsson mætir með stórgæðinginn Hreyfil frá Vorsabæ sem hestamenn sáu á stóðhestaveislunum í fyrra með kraftmikið og mjúkt atriði og eru þeir líklegir til þess að blanda sér í toppbaráttuna. Guðmundur Björgvinsson og Straumur frá Feti virtust ná vel saman í sinni fyrstu keppni í fjórgangnum og miðað við standið á þeim þar munu þeir gera tilkall til sigurs.
Hans Þór Hilmarsson hefur undanfarin ár sýnt Lukku-Láka frá Stóra-Vatnsskarði með góðum árangri hvort sem er í kynbótadómi eða íþróttakeppni og nú verður gaman að sjá hvað þeir geta töfrað fram í gæðingafimi. Ragnar Tómasson og Sleipnir frá Árnanesi voru rétt fyrir utan úrslitin í gæðingafimi í fyrra og ætla sér núna að fá að sýna sitt prógram tvisvar og ríða til úrslita.
Þetta er aðeins brot af þeim pörum sem keppa til sigurs í gæðingafimi annað kvöld. Það má fullyrða að kvöldið verði hið glæsilegasta í alla staði og enginn hestamaður má láta það framhjá sér fara.
Dagskrá
17:00 Húsið opnar
18:00 Dómarar spjalla – Hvernig dæmum við gæðingafimina
18:30 Upphitunarhestar – Heimsmeistarinn Kristín Lárusdóttir og sigurvegari parafiminnar í Suðurlandsdeildinni Lea Schell
19:00 Keppni hefst
Ráslisti
1 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hafrún frá Ytra-Vallholti Hrímnir/Export hestar
2 Lena Zilenski Sprengihöll frá Lækjarbakk Lýsi/Oddhóll/Þjóðólfshagi
3 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn Skúli frá Oddhóli Auðsholtshjáleiga
4 Guðmar Þór Pétursson Brúney frá Grafarkoti Heimahagi
5 Sigurður Vignir Matthíasson Arður frá Efri-Þverá Ganghestar/Margrétarhof
6 Sigurður Sigurðarson Dreyri frá Hjaltastöðum Lýsi/Oddhóll/Þjóðólfshagi
7 Sigursteinn Sumarliðason Háfeti frá Hákoti Heimahagi
8 Árni Björn Pálsson Skíma frá Kvistum Top Reiter
9 Guðmundur Björgvinsson Straumur frá Feti Árbakki/Hestvit/Svarthöfði
10 Bergur Jónsson Katla frá Ketilssöðum Gangmyllan
11 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Ganghestar/Margrétarhof
12 Jakob S. Sigurðsson Gloría frá Skúfslæk Top Reiter
13 Sigurbjörn Bárðarsson Nagli frá Flagbjarnarholti Lýsi/Oddhóll/Þjóðólfshagi
14 Ragnar Tómasson Sleipnir frá Árnanesi Árbakki/Hestvit/Svarthöfði
15 Kári Steinsson Binný frá Björgum Hrímnir/Export hestar
16 Janus Halldór Eiríksson Hlýri frá Hveragerði Auðsholtshjáleiga
17 Sigurður Óli Kristinsson Hreyfill frá Vorsabæ Heimahagi
18 Hanna Rún Ingibergsdóttir Mörður frá Kirkjubæ Hrímnir/Export hestar
19 Hans Þór Hilmarsson Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði Ganghestar/Margrétarhof
20 Teitur Árnason Jarl frá Jaðri Top Reiter
21 Hinrik Bragason Pistill frá Litlu-Brekku Árbakki/Hestvit/Svarthöfði
22 Freyja Amble Gísladóttir Álfastjarna frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan
23 Ásmundur Ernir Snorrason Spölur frá Njarðvík Auðsholtshjáleiga
24 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan
Styttu haustið með EiðfaxaTV