Varst þú búin að senda inn ljósmynd ?
Nú fer að styttast í annan endan á ljósmyndakeppni Eiðfaxa og því er um að gera að fara drífa sig í að leita uppi vinningsskotið. Gríptu myndavélin og arkaðu út í haustið og fangaðu fagra mynd af fríðum fákum.
Verðlaunin eru ekki af verra tagi
1. verðlaun: Folatollur undir Spuna frá Vesturkoti
2. verðlaun: Prentun á striga og myndavélataska
3. verðlaun: Prentun á striga og frí áskrift að Eiðfaxa í ár
Reglur:
Myndirnar skulu vera a.m.k. 2 mb að stærð og sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected] en mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda við fimm ljósmyndir.
Síðasti skiladagur mynda er föstudaginn 22. nóvember nk.
Innsendar myndir eru eign höfunda, en Eiðfaxi áskilur sér rétt til að birta þær í jólablaði 2013 og tölublöðum næsta árs.
Styttu haustið með EiðfaxaTV