Áfram á sigurbraut

  • 25. febrúar 2016
  • Fréttir
Árni Björn jók enn forustu sína í einstaklingskeppni Meistaradeildarinnar.

Áfram heldur Árni Björn á sigurbraut, en hann stóð uppi sem sigurvegari í slakataumskeppni kvöldsins í Meistaradeildinni. Árni og Skíma frá Kvistum komu efst inn í úrslit og héldu sínu. Eins og síðast var það Jakob Sigurðsson sem varð annar en hann kom sjötti inn í úrslit.

Keppnin var nokkuð jöfn og spennandi en þó var ljóst að fair hestar í kvöld hafa verið þjálfaðir með þessa keppnisgrein fyrst og fremst í huga. 

Úrslitin voru sem hér segir:

1. Árni Björn Pálsson / Skíma frá Kvistum     8.00

2. Jakob Svavar Sigurðsson / Gloría frá Skúfslæk 7.83         

3. Bergur Jónsson / Katla frá Ketilsstöðum 7.71      

4. Hinrik Bragason / Pistill frá Litlu-Brekku    7.54    

5. Ísólfur Líndal Þórisson / Gulltoppur frá Þjóðólfshaga  7.17          

6. Sigurbjörn Bárðarson / Spói frá Litlu-Brekku 6.38

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link