Top Reiter ‘365’ kominn á markað
Top Reiter 365. Mynd: www.isibless.de
Á síðasta ári fagnaði Top Reiter 25 ára afmæli sínu í Þýskalandi og nú í byrjun árs 2010, kynnir fyrirtækið nýjan hnakk: Top Reiter 365.
Herbert Ólason, eða Kóki eins og flestir þekkja manninn á bak við Top Reiter sagði um nafn hnakksins: „Við viljum fyrst og fremst tryggja að hnakkurinn sé þægilegur fyrir bæði hestinn og knapann, allt árið um kring.“
„Allar okkar vörur eru prófaðar í langan tíma áður en þær koma á markað og þessi hnakkur var í rúmt ár í þróun og nú kynnum við hann með stolti. Þetta er frábær alhliða hnakkur, hvort sem er fyrir almennar útreiðar eða keppni.
Í samvinnu við hestafólk í Þýskalandi og á Íslandi, er nýr Top Reiter hnakkur orðinn að veruleika og „við erum mjög stolt að bæta honum í flóru okkar góðu hnakka og annarra reiðtygja.“
Top Reiter 365 er með sama virki og aðrir hnakkar frá fyrirtækinu, hinu svokallaða SoftSwing virki. Hann er 45 cm langur og 6 kg að þyngd.
Sjá videó af kynningu Kóka hér fyrir neðan.
Mynd og videó eru frá samstarfsaðila Eiðfaxa í Þýskalandi. www.isibless.de
Styttu haustið með EiðfaxaTV