Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 til Einars Öders
Dregið hefur verið í áskriftarhappdrætti Hestablaðsins. Fyrsti vinningur, folatollur undir Mjölni frá Hlemmiskeiði 3, féll í skaut Góðhesta ehf., eða þeirra hjóna Einars Öders Magnússonar og Svanhvítar Kristjánsdóttur í Halakoti.
Annar vinningur, folatollur undir Loka frá Selfossi, kom í hlut hins kunna hestamanns Sveins Gauks Jónssar. Þriðja vinning, folatoll undir Kjarna frá Þjóðólfshaga, hlaut Ingeborg Steinsdóttir.
Þrír heppnir áskrifendur hlutu korta- og reiðleiðabókina „1001 þjóðleið“ eftir Jónas Kristjánsson. Það voru: Magnús Leópoldsson, Foss ehf., og fyrrum ráðunautur Kristinn Hugason, sem flestir hestamenn ættu að kannast við.
Anna S. Sigmundsdóttir hlaut „Hraunreiðtúr“ með Íshestum, sem er stutt hestaferð um hraunið umhverfis Sörlasvæðið í Hafnarfirði.
Fría áskrift að Hestablaðinu í sex mánuði hlutu eftirtaldir aðilar: Torfunes, Guðný Sigurðardóttir, Fjóla Dögg Gunnarsdóttir, Steinar Steingrímsson, Jóna Einarsdóttir.
Hestablaðið óskar þessum heppnu áskrifendum til hamingju með vinningana.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH