Vildu skáreimina aftur inn
Umræður í lok Landsþings urðu heitar. Keppnisnefnd barst í gær tillaga frá Sigurbirni Bárðarsyni, Erling Sigurðssyni og Kristni Hugasyni þess efni að leyfa aftur skáreim í gæðinga- og íþróttakeppni.
Nefndin ræddi tillöguna en þingið afgreiddi hana ekki þar sem fundarstjórar töldu tillöguna ekki þingtæka, því hún barst þinginu of seint samkvæmt lögum.
Þegar tími gafst fyrir önnur mál varð þessi tillaga mikið hitamál og harmaði Kristinn að tillagan hafi ekki verið tekin upp og átaldi stjórn fundarins. Erling Sigurðsson, sem hefur farið mikinn í dag í umræðum, bað um óopinbert samþykki fundarmanna með spjalduppréttingum og fékk nokkurn meðbyr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH