Aldursforsetinn 35 vetra-

  • 7. janúar 2012
  • Fréttir
Aldursforsetinn 35 vetra-

Höfðingjaeigendur víðs vegar að úr Evrópu hafa tekið áskorun Susanne George og hafa nú eigendur 23 fyrrverandi keppendur í úrslitum Heimsmeistaramóta boðað komu hrossa til Berlínar árið 2013 í gegnum verkefnið „Old Heroes – Wir kommen nach Berlin.“ Stefnt var að því að fá amk. þrjátíu hesta, 20 vetra og eldri, til að heiðra gesti heimsmeistaramótsins í Berlín með návist sinni. Miðað við jákvæð viðbrögð kringum verkefnið horfir í sögulega hópreið.

Meðal þeirra öldnu höfðingja er margfaldur heimsmeistari í 250 metra skeiði Mjölnir frá Dalbæ, ættfaðirinn Mökkur frá Varmalæk og heimsmeistari í fjórgangi Bassi frá Möðruvöllum og að sjálfsögðu Huginn frá Kjartansstöðum heimsmeistari í fimmgangi. Aldursforseti hópsins núna er Glaumur frá Sauðárkróki, sem verður 35 vetra þegar gengið verður inn á völlinn:

 
1.       Huginn frá Kjartansstöðum (1981)
2.       Eitill frá Akureyri (1984)
3.       Pjakkur frá Torfunesi (1983)
4.       Kappi frá Álftagerði (1987)
5.       Gordon frá Stóru-Ásgeirsá (1988)
6.       Depill frá Votmúla (1991)
7.       Blær frá Minni-Borg (1988)
8.       Kongur van Wetsinghe (1991)
9.       Hlynur frá Kjarnholtum (1993)
10.   Flotti fra Dadil (1991)
11.   Stefnir frá Tunguhálsi (1986)
12.   Nasi frá Blönduósi (1991)
13.   Yngvi Blesi (1989)
14.   Mjölnir frá Dalbæ (1992)  
15.   Bragi von Allenbach (1991)
16.   Mökkur frá Varmalæk (1985)
17.   Bassi frá Möðruvöllum (1992)  
18.  Thor från Kalvsvik (1991)
19.  Glaumur frá Sauðárkróki (1978)
20.  Laxnes vom Störtal (1994)
21.  Blettur van Aldenghoor (1985)
21. Askur från Håkansgården (1992)
22. Númi frá Þóroddsstöðum (1993)
23. Trúr frá Wetsinghe (1993)
 

Hægt er að fylgjast með verkefninu hér.

Þessu tengt:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link