Sigursteinn íþróttamaður Sleipnis

  • 30. janúar 2012
  • Fréttir
Sigursteinn íþróttamaður Sleipnis

Sigursteinn Sumarliðason íslands- og landsmótsmeistari í tölti var kjörinn Íþróttamaður Sleipnis á aðalfundi félagsins 25. janúar sl.

Árangur hans á árinu er afar glæsilegur og fer þar hæst árangur hans í tölti þar sem hann varð bæði Íslands- og Landsmótsmeistari á hryssunni Ölfu frá Blesastöðum 1A. Einnig var hann í A-úrslitum í öllum hringvallargreinunum á Landsmóti hestamanna í sumar. Sigursteinn hlaut einnig titilinn Íþróttaknapi ársins í vali hjá Landssambandi hestamannafélaga nú í haust. Einnig varð hann í örðu sæti í kjöri Íþróttamanns Árborgar 2011.

Ræktunarbikar Sleipnis hlaut Viðja Hrund Hreggviðsdóttir fyrir Frakk frá Langholti, stóðhest sem hlaut 8,68 í aðaleinkunn á sl. landsmóti.

Haukur Baldvinsson var verðlaunaður fyrir besta tíma Sleipnisfélaga í 150 metra skeiði en hann fór þá á Fali frá Þingeyrum á 15,25 sekúndum.

Arnar Bjarki Sigurðarson var verðlaunaður fyrir besta tíma félaga í 100 metra skeiði, er hann og Snarpur frá Nýjabæ fóru þá á 7,94 sekúndum. Þá hlaut Arnar Bjarki einnig Æskulýðsbikar Sleipnis fyrir að sýna af sér góða og prúða reiðmennsku, vera góð fyrirmynd innan vallar sem utan og fyrir frábæran árangur á keppnisvellinum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Sleipnis.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link