Hópastjóra vantar

  • 3. júní 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
FEIF Youth Cup verður á Hólum í sumar

Æskulýðsnefnd LH heldur alþjóðlegt æskulýðsmót á vegum FEIF á Hólum í sumar, 11. – 20.júlí, þar koma saman 78 keppendur frá aðildalöndum FEIF í þjálfun og keppni. Það vantar tvo hópstjóra (teamleader) til að halda utanum sitthvorn hópinn en krökkunum er skipt í þrettán lið og er hópsstjóri með hverjum hóp. Upplagt tækifæri til að kynnast fólki sem deilir ástríðu á íslenska hestinum, kynnast nýjum keppnisgreinum og hafa gaman.

Áhugasamir þurfa að vera orðnir 21 árs, tala ensku og kunna einhver skil á keppnisreglum FIPO.  

Nánari upplýsingar gefa nefndarmenn æskulýðsnefndar, Helga[email protected]  og Andrea [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link